Stofnun Taugavísindafélags ÍslandsTaugavísindafélag Íslands (TÍ) var stofnað 28. desember 2007. Markmið félagsins er að stuðla að framgangi taugavísinda á Íslandi. Félagið mun leitast við að stuðla að faglegri umræðu, samstarfi og samheldni á meðal þeirra sem stunda taugavísindi og skyldar greinar á Íslandi. Félagið mun einnig stuðla að fræðslu um taugavísindi, gildi og hlutverk þeirra í samfélaginu. Þá mun félagið beita sér fyrir auknum fjárframlögum til rannsókna í taugavísindum og beita sér fyrir samvinnu stofnana, fyrirtækja og háskóla sem starfa á sviði taugavísinda.
Stofnfélagar voru 22 talsins með margvíslegan bakgrunn s.s. líffræði, sálfræði, læknisfræði og verkfræði. Fyrsti formaður félagsins var kjörinn Dr. Karl Ægir Karlsson lektor í tækni- og verkfræðideild við HR, gjaldkeri Dr. Finnbogi Þormóðsson, fræðimaður HÍ, og ritari Dr. Árni Kristjánsson, lektor við HÍ.
Félagið er fagfélag en allir sem starfa við taugavísindi geta orðið félagar. Fyrirspurnir um félagið, félagsaðild og óskir um fjárframlög til félagsins er hægt að senda til stjórnarmanna á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 Stækka
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |