|
19. janúar 2009 Fundur Vísinda- og TækniráðsNúna á miðvikudaginn verður haldin fundur Vísinda- og Tækniráðs um stefnuna árin 2009-2012. Meðal frummælenda verða Guðrún Nordal og Þórarinn Guðjónsson. Ég hvet alla sem tök hafa á að mæta á fundinn. Ætla má að á honum verði fjallað um breytingar á reglum RANNÍS (til dæmis um mótframlag), um fjármögnum samkeppnissjóða í andrúmslofti eins og nú ríkir og um stöðu markáætlana. Allt eru þetta málefni sem skipta miklu máli fyrir vísindafólk á Íslandi og því mikilvægt að fjölmenna, láta í okkur heyra, og þekkja orðræðuna í þaula. Í framhaldinu má skipuleggja aðgerðir til þess að hafa áhrif á ferlið. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 19, milli 15:00 og 17:00 miðvikudaginn 21. janúar. |
Each national member society can submit one application.
For more details, see the Call for Proposals.
Fréttir
European Journal of Neuroscience
|




