|
10. október 2008 Fyrsta ráðstefna TÍ er næsta föstudag
Fyrsta ráðstefna Taugavísindafélags Íslands verður haldin næstkomandi föstudag 17. október í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2. Ráðstefnan byrjar kl. 17:00 með ávarpi formanns og stendur til kl. 19:00. Á ráðstefnunni verða veggspjaldakynningar og léttar veitingar eins og áður var auglýst en vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna í þjóðfélaginu undanfarna daga mun fyrirlestur Dr. Thompsons falla niður. Nánari upplýsingar um staðsetningu ráðstefnunnar verður tilkynnt síðar. Allir áhugasamir eru velkomnir á ráðstefnuna. Verum kát og gerum okkur glaðan dag saman!
![]() |
Each national member society can submit one application.
For more details, see the Call for Proposals.
Fréttir
European Journal of Neuroscience
|





