Stofnun Taugavísindafélags Íslands

Taugavísindafélag Íslands (TÍ) var stofnað 28. desember 2007 í kjölfar vinnu undirbúningshóps skipaðan af Styrmi Sævarssyni, Karli Ægi Karlssyni, Pétri Henry Petersen, Ragnhildi Káradóttur og Finnboga Þormóðssyni. Markmið undirbúningshópsins var að semja lög félagsins ásamt því að boða til stofnfundar félagsins.

Stofnfélagar voru 22 talsins með margvíslegan bakgrunn s.s. líffræði, sálfræði, læknisfræði og verkfræði. Fyrsti formaður félagsins var kjörinn Dr. Karl Ægir Karlsson lektor í tækni- og verkfræðideild við HR, gjaldkeri Dr. Finnbogi Þormóðsson, fræðimaður HÍ, og ritari Dr. Árni Kristjánsson, lektor við HÍ.

Markmið félagsins er að stuðla að framgangi taugavísinda á Íslandi. Félagið mun leitast við að stuðla að faglegri umræðu, samstarfi og samheldni á meðal þeirra sem stunda taugavísindi og skyldar greinar á Íslandi. Félagið mun einnig stuðla að fræðslu um taugavísindi, gildi og hlutverk þeirra í samfélaginu. Þá mun félagið beita sér fyrir auknum fjárframlögum til rannsókna í taugavísindum og beita sér fyrir samvinnu stofnana, fyrirtækja og háskóla sem starfa á sviði taugavísinda.

Félagið er fagfélag en allir sem starfa við taugavísindi geta orðið félagar. Þeir sem vilja gerast félagar geta fyllt út eftirfarandi eyðublað og sent á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Ársgjald félagsins er 1500 ISK. Fyrirspurnir um félagið, félagsaðild og fjárframlög er hægt að senda til stjórnarmanna á netfang félagsins.

 

 

 

Af stofnfundi Taugavísindafélags Íslands í desember 2007.

 

 

 

 

Taugavísindafélag Íslands
Bnr. 0101-26-058020 kt. 580208-1180