News

 

29. júní 2011

Fyrirlestur: Thermogenesis in cetacean brain evolution (Áhrif hitastjórnunar á þróun heila sjávarspendýra)

Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Háskólans í Reykjavík, mánudaginn 11. júlí kl. 16:00-17:00, í stofu V1.02 (Betelgás). Fyrirlesari er Paul Manger, prófessor við Witswaterserand-háskóla í Jóhannesarborg, Suður-Afríku.

Lesa meira...
 

26. nóvember 2009

Fyrirlestur: Circuits that regulate cortical plasticity

Dr. Patrick Kanold, lektor við University of Maryland, mun halda fyrirlestur sem ber yfirskriftina Circuits that regulate cortical plasticity þann 10. desember 2009 kl.16:00. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Kringlunni 1 í stofu K5. TÍ hvetur félaga til að taka daginn frá og senda meðfylgjandi auglýsingu til allra sem gætu haft áhuga. Allir eru velkomnir.

 

 

29. október 2009

Fyrirlestur Ragnhildar Káradóttur

Taugavísindafélagið vill vekja athygli á fyrirlestri Ragnhildar Þóru Káradóttur föstudaginn 30. október kl. 15:30. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Kringlunni 1, stofu K-5. Útdráttur úr fyrirlestri Ragnhildar og aðrar upplýsingar má finna hér að neðan.

 

Ragnhildur Þóra Káradóttir
Dorothy Hodgkin Research Fellow of the Royal Society
Department of Veterinary Medicine, University of Cambridge

Abstract

Neuregulin expressed by axons can regulate myelination by signalling to ErbB receptors on myelinating cells. Furthermore, in CNS grey matter, neuregulin increases the expression of NMDA receptors. Oligodendrocytes at all developmental stages in the white matter exhibit NMDA evoked currents, mediated by receptors which show very weak magnesium block and are expressed in the myelin (Káradóttir et al., 2005, 2008), indicating that they might play a role in myelination.

We now use an assay in which cortical oligodendrocytes ensheath dorsal root ganglion cells (Wang et. al., 2006) to show that neuregulin and NMDA receptors interact to regulate myelination. Without neuregulin, blocking NMDA receptors had no effect on myelination. Adding neuregulin (in the form of the extracellular domain of NRG1-b1, 10ng/ml) increased myelination by 60%, and led to the majority of myelination being dependent on activation of NMDA receptors: NMDA receptor block decreased myelination by 80%. Blocking action potentials with TTX also had no effect in the absence of neuregulin, but greatly reduced myelination in the presence of neuregulin. Neuregulin's effect was associated with a 4-fold increase in NMDA receptor current in oligodendrocyte lineage cells. Thus, neuregulin apparently switches myelination from a default programme, that is independent of neuronal activity, to a mechanism that is regulated by glutamate released from active axons.

These data reveal a function for oligodendrocyte NMDA receptors, and could provide a novel white matter explanation for how the linkage of neuregulin to schizophrenia can be reconciled with schizophrenia involving a malfunction of NMDA receptors. The absence of
neuregulin in multiple sclerosis lesions, and restoration of myelination by added neuregulin, suggest a role for neuregulin/NMDA receptor dependent remyelination after pathology.

 

 

 

8. október 2009

Fyrirlestur: Can neuroscience help us understand the mind?

TÍ vill vekja athygli á fyrirlestri Bruni Falissard Ph.D frá Frakklandi. Titill fyrirlestursins er „Can neuroscience help us understand the mind?“ og byggir á bók Falissard, Exploring The Workings Of The Mind sem kom út árið 2008. Fyrirlesturinn verður mánudaginn 16. nóvember, kl. 16 í hátíðarsal HÍ. Fyrirlestur Falissard er í boði franska sendiráðsins.

 

 

25. september 2009

Fyrirlestur - Ultrasound Current Density Imaging (UCSDI)

Taugavísindafélag Íslands vill vekja athygli á fyrirlestri Dr. Ragnars Ólafssonar sem ber yfirskriftina Ultrasound Current Source Density Imaging (UCSDI). Fyrirlesturinn verður haldinn á morgun, föstudaginn 25. september, í stofu K5 í Háskólanum í Reykjavík (Kringlan 1, gamla Mbl-húsið) kl. 15. Upplýsingar um Ragnar og fyrirlestur hans er að finna að hér að neðan.

--------

Ultrasound Current Source Density Imaging (UCSDI)

Ragnar Ólafsson hlaut B.S. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands 2002. Árið 2002 hlaut hann Fulbright styrk til þess að stunda framhaldsnám í heilbrigðisverkfræði (e. biomedical engineering) við University of Michigan í Ann Arbor, Michigan, þar sem hann lauk doktorsprófi árið 2008. Hann vinnur fyrir Dr. Russell Witte í Department of Radiology við University of Arizona. Rannsóknasvið Ragnars eru myndun lífrafsviðs (e. biopotentials) með úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound) og beitingu ljóshljóðsmyndtækni (e. photoacoustics) á hjartasjúkdóma.

Taugaskurðlækningar krefjast í sumum tilfellum nákvæmnar kortlagnar á virkni heilans til þess að takmarka aukaverkanir. Núverandi kortlagningartækni, sem byggir á yfirborðs- og stungurafskautum, er tímafrek og hefur takmarkaða upplausn (5-10 mm). Þessi fyrirlestur mun lýsa “ultrasound current source density imaging” (UCSDI) tækni, svokallaðri, sem gæti hugsanlega bætt þessa aðferð. UCSDI byggir á rafhljóðshrifum (e. acousto-electric effect) og kortleggur rafsvið með úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound). Hugsanlegir kostir UCSDI eru meðal annars góð upplausn sem afmarkast af brennidepli úthljóðsgeislans (< 1 mm), hröð kortlagning með rafrænni stýringu úthljóðsgeislans og sjálfvirk samsvörun við venjulegar endurvarpshjóðmyndir (e. pulse echo ultrasound).
Í þessum fyrirlestri verður UCSDI tækninni lýst, beitingu hennar við kortlagningu á tvívíðu tvípólsrafsviði og til að nema virkjunarstrauma hjartans. Að lokum verður lýst nýjum tilraunum til þess að nema rafstrauma í taugum með hjálp þessarar tækni.

 

5. maí 2009

Mótefni gegn Alzheimer: Framtíðin eða fjarstæða?

TÍ vill vekja athygli á málstofunni sem ber yfirskriftina Mótefni gegn Alzheimer: Framtíðin eða fjarstæða? Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

----

 Málstofa í stofu 104 í Haga við Hofsvallagötu, fimmtudaginn 7. maí kl. 12-13

 Í málstofu Rannsóknarstofnunar um lyfjamál, Lyfjafræðideildar og  fræðslunefndar Lyfjafræðingafélags Íslands mun Doktor Einar Már Sigurðsson, dósent við New York University, Langone Medical Center, halda erindið "Mótefni gegn Alzheimer: Framtíðin eða fjarstæða?"

Nánari upplýsingar um Dr. Einar Má og rannsóknir hans má finna á slóðinni: http://www.med.nyu.edu/people/sigure01.html eða meðfylgjandi
viðhengi. pdf

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

----

 

5. maí 2009

Kokkteilboð TÍ

Taugavísindafélag Íslands bauð meðlimum félagsins og vinum í kokkteilboð á Thorvaldssen Bar þann 17. apríl síðastliðinn. Boðið var með óformlegu sniði og þar gafst félögum tækifæri á að hittast og spjalla. Einnig hélt Árni Kristjánsson fyrirlestur. Myndir frá fyrirlestrinum má sjá að neðan.

 

 

 Fyrirlestur Árna
 


 

 

Kokteilboð TÍ

Þann 17. apríl næstkomandi munum við gera okkur glaðan dag. Frá klukkan 17:00 – 19:00 á Thorvaldsen Bar (Austurstræti 8) verðum við með sal útaf fyrir okkur, bjór á sértilboði og gagnmerka fyrirlesara. Allir meðlimir eru hvattir til að mæta og hví ekki að taka eitthvern með sér sem gæti orðið meðlimur
 

6. febrúar 2008

Fyrirlestur Dr. Torgeir Holen

Mánudaginn 9. febrúar mun Dr. Torgeir Holen halda fyrirlestur sem ber yfirskriftina What do water channels and square arrays do in the brain? Fyrirlesturinn verður haldinn í Læknagarði en nánari upplýsingar er að finna hér að neðan.

 

Dr. Torgeir Holen
Centre for Molecular Biology and Neuroscience
Norwegian Centre of Excellence at the University of Oslo

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL